Halló þú

Þórey Birna

31.10.2007 23:26:13 / torey

Fríka út

Jæja ætla að verða dugleri í bloggbransanum hér með. þar sem ég lifi svo merkilegu lífi verð ég nú að deila því með landanum.

En nújæja mamma sín og pabbi farin til rómar og ég er orðin húsmóðir á hagamelnum bara allt í einu. Er alveg að brillera í þessu pitsur í öll mál. Ne nú lýg ég, ég fór í bakaríið einu sinni, og svo er ég búin að éta heima hjá Jóa og Petru sem er nú nokkuð holt, sem bætir þettaupp, eða þannig.

En allavega er að fara að vinna alla helgina, sem er kanski fyrir bestu þar sem ég er í soldlu banni á næsta ball, vegna örlítillar ofurölvunar. Það var nú samt ekkert til að gera mál yfir, held að það sé nú aldeilis verið að gera úlfalda úr mýflugu. Langar samt svo að fara útaf því að það verður nýdönsk eða eitthvað svona afbrigði af nýdönsk og ég væri alveg til í að fá að fara þarna inn þá aðeins til að heyra og syngja hástöfum nostradamus. Een það er ekki til umræðu þar sem ég er á þessum kolsvartalista.

Er búin að ákveða að sæka sunnu sín á flugvöllinn og ætla að fá einhvern í lið með mér svo ég villist nú ekki á leið í stóborginni eða verði mér nú að einhverjum voða. Þetta verður stórt mission og þvílík svaðilför.

Allavegana þá er ég búin að vera að einhverfast eins og litlu gelgjurnar í webcam er búin að uppgötva að ef manni leiðist þá er þetta svarið. ætla að henda einni undurfagri módelmynd hingað inn eða þannig.

 

\

Kveð að sinni bitrari en aldrei fyrr og langar á ball.

ÞóreyBirnaBjöss

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 00:57:32 / torey

I left a box of memorys lying on the floor

ó halló. Það var komin einhver pressa í lýðinn og auðvitað kann maður ekki að höndla svona pressu þannig maður bloggar hér eins og meiníak.

En allavega þá er mikið búið að ske hjá mér á síðustu mánuðum. Skólinn alveg að drepa mig, er umþað bil svooona frá því að gefast upp. Svo er byrjuð að vinna á dóminós með skólanum, og er það mjög fínt.

Sunna sæta búin að koma í heimsókn frá útlandinu og var farið á októberfest og var aðalega fljótandi fæði þá daga.

Átti afmæli þann mikla dag 13 okt og hélt smá afmælisbjóð handa mínum nánustu og heppnaðist það mjög vel þar sem mamma sín eldaði handa fíblunum og var þetta mjög fín kvöldstund.

Svo er mín búin að fá bílprófið eftir laangþráða bið. náði í það að miðnætti og krúsaði um á svoleiðis aldeilis flottum gömlum ökukennslubíl þar sem hann býr við þann sérstaka hæfileika að vera með pedala báðum megin, þannig það var minnst fulla manneskjan sem sat frammí til að verða mér ekki að voða með því að ýta ´"óvart" á bensíngjöfina og valda árekstri. en þrátt fyrir hjálpar pedala er ég búin að drepa örlítið oft á honum, og keyra uppá kant og festast og verða mér til skammar. eeen það er bara kúl. Svo er ég komin á minn eiginn kagga sem er nú ekki meira né minn er mithubitsi lancer.

Sýndi btw mína miklu aksturshæfileika um helgina þar sem ég var driver fyrir hana villu sín uppí Lundareykjadalinn góða þar sem var haldið hlöðupartý að tilefni afmælis önnu heiðu. var meðal annars stoppuð af lögguni þar sem mér var hrósað fyrir að vera með ásættanlega lítið magn af áfengi í blóði og svona. og fékk að sýna mitt undurfagra ökuskírteini í fyrsta skipti.

en já ég er bara núna í góðu vetrarfríi sem er bara leti og meiri leti. hef varla staðið uppúr sófanum og er held ég komin með kassalaga augu af öllu sjónvarps og tölvu glápi.

en held að ég hafi það ekki lengra, alveg nógu langt fyrir þá sem eru ekki í blogg formi

kveð að sinni með bros á vör. og ákvað að setja eina jólamynd síðan í fyrra að tilefni þess að það eru að koma aftur jól bráðum. eða já :P

Kv þórey birna

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 10:07:51 / torey

Þá er komið að því, nú verður gaman.

Jæja ákvað að blogga svona því að mér leiðist soldið og svo lofaði ég Sunnu minni að blogga svo hún gæti frétt eitthvað af íslandinu. ;)

Enn já sumarið það er búið að vera mjög fínt.

Kláraði skólann og byrjaði að vinna. Fór síðan í lok maí til spánar með fjölskyldunni og Lambhagafjölskyldunni. og á meðan allir urðu svona brúnir eins og á að gerast þá varð ég fyrst svona rauð og svo varð ég svona flögnuð í framan og bara brann ógeðslega mikið. Enn fín ferð þrátt fyrir það.

Svo var bara unnið meira, svo var farið á Bíladaga á Akureyri og fórum við stelpurnar saman í bíl og Eva driver. Geðveik ferð og skemmti ég mér mjöög vel. Svo var bara unnið og eytt peningum í einhverja vitleysu og svo komu Írskir dagar, eftir langa bið og urðu þeir mér ekki fyrir vonbrigðum. Svo var bara unnið meir og eytt óþarflega mikið af pening í áfengi og vitleysu.

Svo kom verslunarmannahelgin. og var planið að fara til Akureyrar en það var beilað alveg rosalega á því. þannig við vorum bara á gamla góða skaganum sem var reyndar mjög fínt. Gaman að vera bara róleg inni heldur en eitthvað rugluð í tjaldi.

En svo helgina eftir versló héldu Sunna og Petra kveðjupartý útaf útlandaför þeirra. voru þær búnar að leigja miðgarð og var þetta mjög fínt. Svo komu danskir dagar og það var líka beilað á því alveg rosalega, fór frekar á menningarnótt sem var reyndar fínt. Hefði samt viljað fara á danska eftir allar sögurnar sem ég er búin að heyra þaðan ;)

Og núna er skólinn byrjaður og ég nenni engan veginn að læra, sem er smá vandamál. Og Sunna farin út, og var sjúlega ervitt að kveðja hana og fuku nokkur tár hjá flestum held ég :P

Enn ég hef það ekki lengra handa ykkur. :P

Kveð að sinni. kv Þórey Birna

(ein mjöög edrú mynd ad okkur sunnu)


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 17:25:57 / torey

hóhóhó

Hæhó

Sælir góðir landsmenn

Allavega Erla er eitthvað búin að vera að bögga sig þannig ég ætla að blogga smá fyrir hana ;)

En já prófin búin. ég og Sunna fögnuðum vel og tjölduðum undir akrafjallinu og skemmtum við okkur konunglega. fengum okkur aðeins í tánna og fórum bara að sofa ekkert mjög seint. enda byrjuðum við kl 7. ;) Soldið af fólki kom og heilsaði uppá okkur Rósa og Villa komu með ýmist góðgæti handa okkur þar sem við klikkuðum alveg á mat, svo um nóttina þá var orðið svo drullukalt og þórður, gréta og birkir komu og sóttu okkur og gistum við bara uppá vist. Svo fengum við einnig heimsóknir frá kindum og hestum. Strax og við vorum búnar að opna fyrsta bjórinn og koma okkur vel fyrir heyrðum við einhverja dynki og rukum upp og þá voru einhverjar helvítis rollur búnar að umkringja bílinn hennar sunnu og byrjaðar að stanga hann. Svo soldið eftir það komu fullt af hestum og byrjuðu að naga bílinn. Við sunna erum svo sveitó þannig við tókum bara nokkur hojjhojj burt burt á þetta lið. ;)

Seinustu helgi var svo kosninga/jurovision helgi og fórum ég, rósa og steinunn á leik ia-fh og svo um kvöldið vorum við heima hjá steinunni að horfa á júrovision ásamt sunnu og villu. og skemmtum við okkur konunglega. Svo var bara farið á rúntinn og eitthvað. :)

Svo er ég byrjuð að vinna, frí á morgun og svo staffapartý á föstudaginn. lýst vel á það.

Hlakka endalaust til sumarsins, get ekki beðið eftir því að eiga fullt af pening og fara eitthvað út á land á útihátíðir ;)

En ég segi þetta gott í dag. Nenni þessu ei lengur í bili.

Kv Þórey :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 21:48:41 / torey

i need another painkiller (8)

Hæhó

Já þar sem ég er búin að vera svo dugleg að læra ákvað ég að taka mér smá pásu frá lærdóm og blogga smá ykkur til ánægju og yndisauka.

En allavega, 2 próf búin af 5. Stærfræði próf í dag sem var btw drullu ervitt. Veit ekki um neinn sem gekk vel. Nóg um það.

Var bara róleg um helgina. Sunna sæta kom og sótti mig uppí sveit á föstudaginn og kíktum við smá rúnt. mjög svo æðislegt kvöld :) á laugardagskvöldið fór ég ásamt Dagbjört til Ástu í smá afmælismatarbjóð og var hún svo myndarleg að elda handa okkur læri ásamt meira góðgæti. Fóru einhverjir i pottinn en ég og Erla héldum okkur að mestu leiti innandyra og vorum að tölvunördast. Svo var farið smá á skagann og kíkti ég á rúntinn með Dagbjörtu minni, Lindu og Rakel. Svo fóru þær og vorum við Dagbjört í spjallgírnum. Frábært kvöld :P

já svo er maður búin í þessum prófum á miðvikudaginn og byrja ég þá að vinna. Er búin að fá vinnu í allt sumar í hrognunum uppí Vigni. Svo styttist í spánarferðina, og verðum við Guðdís heltanaðar eftir hana, eða hún allavega ég verð bara þúsund freknur.

En jæja hef það ekki lengra í bili. og þætti mér vænt um að það kommentuð nokkur orð því ég lagði geðveikt mikla vinnu í þetta blogg, eða svona já ;)

kv Þórey Birna ofurlærdómsmaður

 

ATH! Setti nokkrar myndir hérna inn líka. Endilega kíkja á þær. Sátt linda? ;)

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 18:54:27 / torey

ooooó

Já hæhó.

Smá blogg útaf Ásta mín á afmæli og vil byrja á því að óska henni innilega til hamingju með afmælið og bílprófið. Og takk æðislega fyrir skutlið í gær ;*;*

 

En allavega þá var dimmusjón og lokaballið í gær. Ég og Sunna vorum að vinna uppí bíóhöll og þegar hléið var búið þá var fengið sér smá í tánna og vorum við þar þangað til ballið byrjaði. Og skemmtum okkur konunglega ;) En já ballið var fínt, og svo var farið á rúntinn með ástu ofurbílstjóra :D

En já næsta skólavika stutt og svo þessi helvíts próf. Vona að allt gangi vel og vandlega.

En ætla að slútta þessu með einni mynd.

Kv Þórey Birna Bjöss

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 18:40:45 / torey

Ef eitthvað er ekki gott, þá er það ekki endirinn!

Jæja Góðann daginn.

Ákvað að blogga aðeins smá á þessari síðu. :)

Ekki eins og það sé mikið búið að gerast. Seinasta skólavikan að klárast, þrír læridagar fram að prófum. Sem þýðir aðeins eitt. Sumarfríið nálgast! sumarið að sjálfsögðu fullplanað, eða svona já. ;) Búin að fá vinnu uppá höfða eitthvað smá. Verð kanski eitthvað í Vigni líka. Vona bara að fá sem mesta vinnu og sem mestan pening til að eyða.

Allavega í gær fór ég með henni Sunnu minni og hjálpaði henni uppí bíóhöll. Mjög svo fínt það :) Ball og Dimmusjón á morgun gott mál það. Grímuball er þetta víst og þá er að sjá hverjir ætla að mæta í búningum?

En já ég bara er komin með algjöra ritstíflu og ætla ekki að hafa það lengra. Blogga meir þegar ég hef meir að segja ;)

Kv Þórey Birna :)




» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 11:09:31 / torey

new

ný síða komin ;)

www.blog.central.is/sybd-yeah

Við stelpurnar, ég villa, sunna, rósa, og eva :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 19:34:27 / torey

Nýtt blogg á nýju ári.

Halló þið, smá áramótablogg þótt það sé langt síðan nýja árið gekk í garð :P

En allavega, þá var árið 2005 eitt af því besta sem hefur verið og vil ég þakka ykkur öllum fyrir að gera það svona æðislegt ;)

En  já núna er skólinn byrjaður, mér til mikils ama. Nenni þessi varla. En ég er komin á vistina, og er með Ásdísi minni í herbergi. 107, verið velkomin ;) en það er ekki komið neitt inn ennþá. er að vinna í þessu. Er bara hjá Sibbu og Erlu mínum þar sem ég fæ aðgang af tölvu og sjónvarpi ;) smá siðmenning.

En já svo var í dag bara svona sækja stundartöfluna og fór í 2 tíma svona til að fá kennsluáætlun :P Helga og Hugga voru svo uppá vist hjá mér og fórum við í kuldanum og kauptum ís með pesi. einstaklega gott :P

´Svo erum við Sibba mín her bara að horfa á sjónvarpið, eða ég er að horfa á það og blogga meðan hún tekur smá fegurðarblund. Vorum að borða dýrindis subway á la Erlu :P

Nenni þessu ekki lengur, hef það ekki lengra. blogga þegar talvan mín kemst í lag, ef það verður þá einhverntíman.

Kveð að sinni. Þórey :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 00:45:53 / torey

dfghjklkjhdfg ?

Já halló þið fólk! blogg hér ótrúlegt en satt.. þetta gerist ekki á hverjum degi þegar engin talva er við hönd, en þá deyr maður ekki ráðalaus heldur fer til rósu og bloggar það. Spáið í dugnaðinum. ;)

En já það hefur fullt gerst. Prófin búin og ég náði öllu.... nema félagsfræði, og það vill svo skemmtilega til að ég er á félagsfræðibraut þannig mér finnst þetta hálfasnalegt.

En allavega, svo er bara búið að vera jólastúss og ófáar ferðir farnar til reykjavíkur í von um að finn einhverjar jólagjafir sem gekk svona misvel..

En já svo fór ég að vinna smá. alveg tvo daga.. :P dugnaður í mér. Svo eru já nátturulega jólin búin og ég er bara mjög sátt með mitt. Fékk ýmislegt nothæft ;)

En já ætla að óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Og ég blogga þegar ég fæ net aftur :D

Kv Þórey Birna


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 15:21:55 / torey

Skál

Já halló þið fólk. Langt síðan síðast, mjöög langt.

En allavega styttist í jólafrí. Próf á næsta leiti, eða á mánudaginn. Er svo búin 12. þá ætla ég að leggjast í leti og éta yfir mig af smákökum og mandarínum. Þá eru jólin komin :P

En já allavega, ball í gær. Dagurinn bara búinn að vera stress, ég sunna rósa og villa bara í því að redda og versla og bara stress rugl. En svo var haldið uppí Hvítanes til hennar Ástu sætu. Þar vorum við að elda og undirbúa okkur fyrir ballið og svoleiðis. Vorum þar rósa sunna ég villa rúna valdís evabjörk ásta ingibjörg valdís og svo kom magnús i :) Mættum svo galvösk á ballið og skemmti ég mér mjög svo vel. dansidans :P En já svo vakanaði ég í morgun og tróð mig út af bakarísdóti og hafði það ekki góðar afleiðingar í för með sér. er að deyja í maganum núna :P

en já núna sit ég hérna hjá rósu og fékk afnot af tölvunni því mín er með einhverjan fjandan vírus og vill ekki hlíða mér. og erum að við að háma í okkur snakk, rosalega hollar.

Enn já segi það gott í dag, reyni að blogga oftar..

Bæjó. ;*;*;*

Kv Þórey Binra ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 18:17:11 / torey

I really dont mind, what happens now and then, as long as u be my friend at the end.

Hallo til folk.

ok vandamal med lyklabordid og eg veit ad tad er er hundleidinlegt ad lesa svona oislensk skrif en eg aetla samt ad blogga ykkur til anaegju og yndisauka.

En allavega. Eg er buin ad vera uti Budapest! sem var mjog svo fint. For a afmaelisdaginn minn fostudaginn 13 okt. og kom svo heim tridjudaginn eftir tad. en ja flaug ut um nottina, og hafdi madur bara heila saetarod utaf fyrir sig og svaf bara alla leidina, afskaplega famennt flug. En vid forum ut ad borda afmaelismat i einhverju skipi, sjuklega godur matur tarna. svo var bara kikt i pubba og eitthvad og smakkad ungverskan bjor ;)

Svo voru hinir dagarnir bara rolt um baeinn, einhverjar skodunarferdir og audvitad verslad eitthvad. Svo var audvitad farid ohemju mikid ut ad borda enda maturinn ekki af verri endanum, o sei sei nei.

En svo tessa helgi ta var skammhlaupid a fostudaginn og var tad skemmtilegra en eg helt. Hugga gerdi einhverja gedveika greidslu i mig og laeti ;) Svo var tonlistarkeppnin, og svo var ball um kvoldid. Tok mig til heima hja Villu og kikti svo til krakkanna heima hja bjossa og sigga. Svo var bara rolt a ballid i godum filing. og skemmti eg mer alveg agaetlega. :)

Svo var laugardagurinn bara leti. kom svo Sunna og saekti mig asamt Tordi og Asdisi og kiktum vid uppi sumarbustad, en var tad svo leidinlegt ad vid forum bara a skagann a runtin og eitthvad. kiktum svo filuferd i baeinn, en fengum okkur subway ;) Svo bara for eg med villu, rosu og sigurjoni heim einhverntiman.

En ja svo er vetrarfri eda midannarfri naestu helgi. loong helgi. tad verdur naes.

Ja eg hef bara ekkert meir ad segja..

Kved ad sinni :lol:

Kv torey birna


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 18:14:15 / torey

Andlit og nef, nefið og kvef. Við hnerrum hjartanlega (8)

Já já Góðann og blessaðann dagin.

Já það er bara fátt búið að gerast. Róleg helgi verð ég nú að segja, var bara heima á föstudaginn ótrúlega stillt. En fór svo á skagann á laugardagskvöldið með Sibbu sætu. Kíkti í eitthvað partý, svo bara rúntað með Villu og fleirum fram eftir nóttu.
En já svo er bara vikan eða þessir tveir dagar sem eru búnir af henni bara búnir að vera ömurlegir. Og finnst mér það ekkert sniðugt.
En sem betur fer ekki á morgun ekki hinn heldur hinn þá er ég að fara út til Búdapest :D Er farið að hlakka geðveikt til. Fer á afmælisdaginn minn, föstudaginn 13 8| sem á að vera óhappadagur. Verð að passa að lenda ekki í flugslysi, týnast, fá engan mat eða eitthvað sem er óhappa.
Get samt sem áður ekki beðið eftir að komast burt úr þessu rugli og vona að allt verði gott þegar ég kem til baka :P
En er að fara með mömmu,pabba og Rósu minni og verðum við tvær saman á herbergi.
Það verður stuð, langar samt að vera heima á afmælisdaginn en ég tek bara ágætt afmælisdjamm um næstu helgi. sem verður ball, hæfileikakeppni og skammhlaup.
Vona að það verði stuð. Þekki reyndar bara fáa í mínu skammhlaupsliði er með Sigurjóni, Bennsa og Huggu. Þekki örugglega einhverja fleiri sem ég sá ekki á blaðinu ;)

En já ég er farin að elda, eitthvað sem gerist ekki á hverjum degi, ó sei sei neinei. ég ábyrgist ekki að þetta brenni allt við eða fólk fái í magann. :P
En hef það ekki lengra í bili.
Bæjó ;*;*

Kv. Þórey :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 14:22:37 / torey

ósvei

Halló þið fólk.

Já svo langt síðan síðast að ég veit ekki hvar ég á að byrja.

En allavega það er bara búið að vera skóli. fimmtu og föstudagurin bara eitthvað tjill. Næstum því allir busarnir í lífsleikniferð þannig það var bara mjög rólegt, tímar féllu niður og bara ekkert að gera :P En já helgin er búin að vera ágæt eða svona já. Á föstudaginn var edrúball. sem var ekkert svakalega skemmtilegt, þannig ég fór bara eitthvað á rúntin og eitthvað. Svo skutluð Eva og Sunna mér heim og vil ég þakka þeim fyrir allt ;*

Svo í gær þá var bara vinna, fór fyrst til Lindu minnar í heimsókn og röltum svo saman og fengum okkur að éta og svo að vinna. og var hún svo góð að vesenast með mér ;* :) og svo eftir vinnu fór ég á rúntinn með Maju og Ívari. fóru svo á skagann og þar var bara ekkert að gera. Hitti svo eitthvað af fólki og fór svo bara soldið snemma að sofa ;) Hef svo ekki mikið afrekað í dag annað en að sofa og éta vöfflur.

En já ég hef bara ekkert mikið meira að segja. nenni ekki að vera að blogga eitthvað langt aftur í tímann.

En ég kveð að sinni. Bæjó ;*;*

Kv. Þórey :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 14:22:43 / torey

Busi?

Já halló þið fólk, langt síðan síðast.

En já ég er núna byrjuð í fva. Sem er bara mjög svo fínt. Þekki einhverja í öllum tímum sem ég er í sem er bara stór kostur.

En já litli businn ég ásamt öðrum litlum busum vorum busuð við hátíðlega athöfn í gær. Eða þá var byrjað að krota framan í okkur þegar að við komum í skólan, svo voru við látin þjóna hinum og þessum og gera ýmislegt. Svo var okkur öllum hent þanra fyrir framan sviðið og þjappað okkur eins og ég veit ekki hvað, svo vorum við send út og látið okkur velta okkur uppúr drullupllum, sprautað á okkur köldu vatni og síðast en ekki síst drekkt okkur í fiskikörum. Sem var bara stuð.

Svo fór ég til hennar Erlu minnar á vistinna þar sem ég fékk afnot af sturtu og tók mig til og hékk þar ásamt fleirum svo var farið til Ágústar og svo til Bjössa. Eftir það var farið á ballið sem var nú ekkert eitthvað geðveikt skemmtilegt. en hvað um það. :P

Svo er ég bara að fara að vinna kl 4, sem ég er engan vegin að nenna.

En ég ætla að slutta þessu. Finnst vera komið nóg, alveg lengsta blogg sem hefur komið mánuðum saman.

Kveð að sinni ;*

Kv. Þórey :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6